Málsnúmer 2201007
Bæjarráð Grindavíkur - 1613. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að hafa sæti fyrir áhorfendur í allri stúkunni í nýja íþróttasalnum. Það felur í sér aukinn kostnað.
Í upphafi árs var farið af stað með opið útboð vegna stúku í nýjan íþróttasal þar sem samið var við lægstbjóðanda, Exton. Tilboð Exton hljóðaði upp á 229.464 evrur eða tæpar 32 milljónir á gengi dagsins í dag. Grindavíkurbær og hönnuðir hafa undanfarnar vikur og mánuði átt samtal við Exton um stúkuna sem átti að vera með sæti í miðjunni og bekki til endanna. Nú er lagt til að hafa sæti í allri stúkunni sem felur í sér aukinn kostnað sem samkvæmt uppfærðu verði frá Exton er 52.355 evrur. Tölvupóstur frá Exton lagður fram með erindinu. Heildarkostnaður stúku frá Exton yrði því um 38.904.822 kr. á gengi dagsins i dag.