Málsnúmer 2112412
Bæjarráð Grindavíkur - 1601. fundur - 1.11.2022 00:00:00
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram tölvupóstur frá björgunarsveitinni Þorbirni varðandi hugmyndir um sameiginlega björgunarmiðstöð í Grindavík.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
Borist hefur erindi frá björgunarsveitinni Þorbirni um viðræður vegna málsins.