Málsnúmer 2112396
Bæjarstjórn Grindavíkur - 523. fundur - undefined
Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Braga Guðmundssonar ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bragi Guðmundsson ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 3 til Braga Guðmundssonar. ehf.
Bragi Guðmundsson ehf. sækir um lóðina Spóahlíð 3 til byggingar fjölbýlishúss.
Þar sem fleiri en einn umsækjandi er um lóðina fer fram spiladráttur. Þar sem A1 hús ehf. hafði þegar fengið úthlutað lóð á fundinum er hann ekki með í þessum úrdrætti sbr. 4. gr. reglna um lóðarúthlutun í Grindavíkurbæ. Bragi Guðmundsson dró ás, HUG- verktakar ehf. dró fjarka, Grindin ehf. dró tíu.
Lóð úthlutuð til Bragi Guðmundsson ehf. Fyrirvari er settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir.
Skipulagsnefnd vísaði úthlutuninni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu á fundi þann 16. desember 2021.