Málsnúmer 2112020
Bæjarstjórn Grindavíkur - 523. fundur - undefined
Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Grindin ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 9 til Grindarinnar ehf.
Grindin ehf. sækir um lóðina Spóahlíð 9 til byggingar fjölbýlishúss.
Þar sem fleiri en einn umsækjandi er um lóðina fer fram spiladráttur. Þar sem allir umsækjendur hafa fengið úthlutað lóð á fundinum eru allir umsækjendur með í þessum úrdrætti sbr. 4. gr. reglna um lóðarúthlutun í Grindavíkurbæ. Bragi Guðmundsson ehf. dró þrist, A1 hús ehf. dró tíu, Grindin ehf. dró gosa.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari er settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir.
Skipulagsnefnd vísaði úthlutuninni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu á fundi þann 16. desember 2021.