Málsnúmer 2110076
Bæjarráð Grindavíkur - 1618. fundur - undefined
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 að lokinni endurauglýsingu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir hreinsivirki fyrir skólp á hafnarsvæðinu við Eyjabakka og frárennslislögn frá henni til suðurs á Hópsnesi og út í sjó. Þá er í tillögunni bætt við göngu- og reiðhjólastíg frá íbúðarsvæðum vestast í Grindavík að stíg með fram Nesvegi. Í tillögunni er jafnframt sett fram stækkun golfvallar við Húsatóftir í Grindavík. Nánar um tillöguna er vísað til kynningargagna á heimasíðu sveitarfélagsins. Alls bárust 3 umsagnir innan athugasemdafrests endurauglýstrar tillögu þar sem ábendingar komu fram um landmótun á golfvelli með tilliti til hraunmyndana og legu stígar við Nesveg.
Tillögur að svörum við umsögnum lagðar fram og samþykktar á fundi skipulagsnefndar þann 8. ágúst sl. Skipulagsnefnd fól sviðsstjóra að svara umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd samþykkti á fundi þann 8. ágúst sl. eftirfarandi breytingu á skipulagstillögunni til að bregðast við innkomnum umsögnum.
-Bætt er við skilmála fyrir golfvöll ÍÞ2: Við landmótun vegna golfvallar skal leitast við að hlífa heillegum hraunhólum og opnum sprungum og halda óröskuðu hrauni sem hluta vallarins.
Skipulagsnefnd hefur samþykkt skipulagstillöguna og var henni vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 að lokinni endurauglýsingu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir hreinsivirki fyrir skólp á hafnarsvæðinu við Eyjabakka og frárennslislögn frá henni til suðurs á Hópsnesi og út í sjó. Þá er í tillögunni bætt við göngu- og reiðhjólastíg frá íbúðarsvæðum vestast í Grindavík að stíg með fram Nesvegi. Í tillögunni er jafnframt sett fram stækkun golfvallar við Húsatóftir í Grindavík. Nánar um tillöguna er vísað til kynningargagna á heimasíðu sveitarfélagsins. Alls bárust 3 umsagnir innan athugasemdafrests endurauglýstrar tillögu þar sem ábendingar komu fram um landmótun á golfvelli með tilliti til hraunmyndana og legu stígar við Nesveg.
Tillögur að svörum við umsögnum lagðar fram og samþykktar á fundi skipulagsnefndar þann 8. ágúst sl. Skipulagsnefnd fól sviðsstjóra að svara umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd samþykkti á fundi þann 8. ágúst sl. eftirfarandi breytingu á skipulagstillögunni til að bregðast við innkomnum umsögnum.
-Bætt er við skilmála fyrir golfvöll ÍÞ2 : Við landmótun vegna golfvallar skal leitast við að hlífa heillegum hraunhólum og opnum sprungum og halda óröskuðu hrauni sem hluta vallarins.