Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2110069

Bæjarráð Grindavíkur - 1618. fundur - undefined

Tillaga að breyttu deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka lögð fram í kjölfar auglýsingar á tillögunni. Skipulagstillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd samþykkti tillögur að svörum við umsögnum á fundi sínum 22. mars 2022 og þá var sviðsstjóra falið að svara umsagnaraðilum. Í kjölfarið var Skipulagsstofnun send tillagan til yfirferðar, í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga, og gerði stofnunin athugasemd við birtingu gildistöku deiliskipulagsins í B-deild stjórnartíðinda vegna ósamræmis við aðalskipulag. Breyting á aðalskipulagi sem tryggði samræmi þarna á milli var auglýst samhliða deiliskipulagsbreytingunni, og hefur nú verið endurauglýst án breytinga á iðnaðarsvæðinu.
Skipulagsnefnd bregst við athugasemd Skipulagsstofnunar með því að taka breytingu á deiliskipulagi Eyjabakka nú aftur til afgreiðslu, um leið og tengdri breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæja 2018-2032, golfvöllur, stígur og hreinsivirki er einnig vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.

Skipulagsnefnd hefur gert eftirfarandi breytingar á tillögunni, m.a. til að koma til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar:
- Fornminjar uppfærðar skv. skráningu.
- Svæði utan skipulagsmarka aðgreind betur / sýnd í svart-hvítu.
- Þrjár lóðir austan Nesvegar (sem verður Sundabraut) eru sameinaðar á eina lóð og settir skilmálar fyrir lóðina sem er ætluð fyrir geymslusvæði.
- Skerpt er í greinargerð á ákvæðum byggingarreglugerðar sem snúa að brunavörnum.
- Séu hús ekki sambyggð yfir lóðarmörk skal vera a.m.k. 3,5 m frá annarri hlið hússins að lóðamörkum til að tryggja aðgengi að baklóð.
- Heiti á Nesvegi verður breytt í Sundabraut.

Skipulagsnefnd samþykkti skipulagstillöguna á fundi þann 8. ágúst sl. og vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.