Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2110060

Bæjarstjórn Grindavíkur - 540. fundur - undefined


Til máls tók: Ásrún.

Deiliskipulagstillaga fyrir Þorbjörn ásamt tillögu að viðbrögðum við umsögnum er tekin fyrir á nýjan leik því það láðist að leggja fram umsögn Utanríkisráðuneytis og Landhelgisgæslu Íslands. Tillagan hefur verið uppfærð til samræmis við tillögu að viðbrögðum við umsögn Utanríkiráðuneytisins og Landhelgisgæslu Íslands. Á fundi bæjarstjórnar nr. 538 voru samþykkt viðbrögð við öðrum umsögnum.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða deiliskipulagstillöguna eins og hún er lögð fram á fundinum og tillögu að viðbrögðum við umsögnum um tillöguna. Þá samþykkir bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hana til Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Deiliskipulagstillagan og tillaga að viðbrögðum við umsögnum er tekin fyrir á nýjan leik því það láðist að leggja fram umsögn utanríkisráðuneytis og Landhelgisgæslu Íslands.

Tillagan hefur verið uppfærð til samræmis við tillögu að viðbrögðum við umsögn utanríkiráðuneytis og Landhelgisgæslu Íslands.

Tillagan er lögð fram til samþykktar og að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hana til Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.