Málsnúmer 2110055
Skipulagsnefnd - 91. fundur - undefined
Gagnaveita Reykjavíkur sækir um framkvæmdaleyfi fyrir því að plægja niður ídráttarör meðfram Nesvegi vestan við Grindavík heim að sveitarfélagsmörkum við Reykjanesbæ.
Afnotaleyfi frá Vegagerðinni liggur fyrir en lögnin liggur innan veghelgunarsvæðis Nesvegar ásamt umsögn frá Umhverfisstofnun. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkurbæjar.
Skipulagsnefnd heimilar skipulagsfulltrúa í samræmi við 55. gr. bæjarmálasamþykktar, að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum öllum skilyrðum laga og reglna.
Gagnaveita Reykjavíkur sækir um framkvæmdaleyfi fyrir því að plægja niður ídráttarör með fram Nesvegi vestan við Grindavík heim að sveitarfélagamörkum við Reykjanesbæ. Afnotaleyfi frá Vegagerðinni liggur fyrir en lögnin liggur innan veghelgunarsvæðis Nesvegar.