Málsnúmer 2109096
Bæjarstjórn Grindavíkur - 526. fundur - undefined
Til máls tók: Sigurður Óli.
Skipulagstillaga aðalskipulagsbreytingar vegna gossvæðis og sæstrengs lögð fram í kjölfar auglýsingar og umfjöllunar í skipulagsnefnd. Þá er einnig lögð fram viðbrögð við umsögnum og athugasemdum. Eftirfarandi breytingar voru gerðar á tillögunni við umfjöllun skipulagsnefndar eftir auglýsingartíma vegna athugasemda og umsagna.
- Útivistastígur inn Meradali verður reiðleið.
- Útivistastígur frá Bjalla inn að Nátthaga verður göngu- og hjólaleið.
- Útivistastígar vestan Fagradals- og Borgarfjalls verða göngu- og hjólaleiðir.
- Útivistastígur upp Einihlíðar er felldur út.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi nr. 97 þann 7.mars 2022.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 vegna gossvæðis og sæstrengs eins og hún er lögð fram. Er skipulagsfulltrúa falið að senda aðalskipulagið til staðfestingar Skipulagsstofnunar í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá er skipulagsfulltrúa falið að senda þeim er gerðu athugasemd við aðalskipulagið umsögn bæjarstjórnar um þær.
Uppfærð skipulagstillaga aðalskipulagsbreytingar í kjölfar athugasemda og umsagna lögð fram ásamt tillögu að svarbréfum.
Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 vegna gossvæðis og sæstrengs tekin fyrir. Athugasemdir og umsagnir voru lagðar fyrir skipulagsnefnd þann 31. janúar 2022. Þá samþykkti skipulagsnefnd viðbrögð við athugasemdum og umsögnum þann 14. febrúar 2022. Skipulagsnefnd samþykkti þann 14. febrúar að gera eftirfarandi breytingar á flokkun stíga á skipulagstillögunni:
-Útivistastígur inn Meradali verður reiðleið.
-Útivistastígur frá Bjalla inn að Nátthaga verður göngu- og hjólaleið.
-Útivistastígar vestan Fagradals- og Borgarfjalls verði göngu- og hjólaleiðir.
Skipulagsnefnd samþykkti á fundi nr. 97 þann 7. mars 2022 að gera viðbótarbreytingu á skipulagstillögunni sem fellst í að útivistastígur upp Einihlíðar verði felldur út af skipulaginu.
Skipulagsnefnd samþykkti þann 7. mars 2022 skipulagstillöguna með áorðnum breytingum eftir auglýsingu og vísar henni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.