Málsnúmer 2108085
Skipulagsnefnd - 89. fundur - undefined
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir 600 metra löngum reiðvegi. Vegurinn liggur frá núverandi reiðvegi á gamla sauðfjárgirðingarstæðinu norðan megin frá austur að landamerkjum Þórkötlustaða og Hrauns.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag og telst ekki til meiriháttar framkvæmda í skilningi reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin fellur í flokk C í 1. viðauka 1. mgr. 6. gr. laga nr. 106/200 um mat á umhverfisáhrifum og er þar af leiðandi ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd heimilar skipulagsfulltrúa í samræmi við 55. gr. bæjarmálasamþykktar, að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum öllum skilyrðum laga og reglna.
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi norðan hesthúsabyggðar. Reiðleiðin er skilgreint á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Samþykki landeiganda liggur fyrir.