Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2108068

Skipulagsnefnd - 89. fundur - undefined


Anna Bragadóttir og Ásgeir Jónsson frá verkfræðistofunni Eflu sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna stíga og vega vegna eldsumbrota við Fagradalsfjall, landtöku ljósleiðara í Hraunsvík, göngu- og hjólastígs með Nesveg vestan við Grindavík og hreinsvirkis við Eyjabakka lögð fram til umfjöllunar. Kynning og samráð um skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingarinnar fór fram á tímabilinu 1.júní til 21.júní 2021 í samræmi við 1. mgr.30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd samþykkir að gera eftirfarandi breytingar á aðalskipulagstillögunni áður en tillagan verður kynnt í samræmi við 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr.123/2010:

- Sú tillaga sem snýr að aðalskipulagsbreytingu vegna göngu- og hjólastígs við Nesveg og Hreinsivirkis við Eyjabakka verða teknar út úr þessari aðalskipulagsbreytingu og unnar með aðalskipulagsbreytingu við golfvöll.

Skipulagsnefnd samþykkir að aðalskipulagstillagan, með áorðunum breytingum, verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Aðalskipulagsbreyting vegna stíga og gönguleiða vegna eldsumbrota við Fagradalsfjall, landtöku ljósleiðara í Hraunsvík, göngu- og hjólastígs með Nesveg vestan við Grindavík og hreinsvirkis lögð fram. Gögnin eru lögð fram sem þrjár breytingar en verða sameinaðar í eina fyrir auglýsingu á tillögunni.