Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2105141

Hafnarstjórn Grindavíkur - 477. fundur - undefined


Undanfarin ár hefur fjöldi smærri aðkomubáta sem landa í Grindavíkurhöfn á tímabilinu mars - maí farið vaxandi. Afli frá áramótum í ár, er sá mesti í áratugi og má það þakka m.a.lönduðum afla af afkastamiklum línubátum sem bætast í hóp heimskipa á þessum tíma. Í mörgum þessara skipa eru ekki þvottavélar eða þurrkarar og jafnvel takmörkuð hreinlætisaðstaða fyrir áhafnir þeirra. Til þess að mæta þörfum þessara mikilvægu viðskiptavina hafnarinnar og annara þjónustuaðila verður að finna lausn á hreinlætismálum þeirra.


Undanfarin ár hefur fjöldi smærri aðkomubáta sem landa í Grindavíkurhöfn á tímabilinu mars - maí farið vaxandi. Afli frá áramótum í ár, er sá mesti í áratugi og má það þakka m.a.lönduðum afla af afkastamiklum línubátum sem bætast í hóp heimaskipa á þessum tíma. Í mörgum þessara báta eru ekki þvottavélar eða þurrkarar. Til þess að mæta þörfum þessara mikilvægu viðskiptavina hafnarinnar verður þeim boðin þvotta- og sturtuaðstaða.