Málsnúmer 2104058
Skipulagsnefnd - 88. fundur - undefined
Sótt er um stækkun lóðar við Hópsveg 1. Fulltrúar 240 ehf. sátu fundinn undir dagskrárliðnum til að kynna verkefnið.
Áformin eru í samræmi við aðalskipulag Grindvíkurbæjar 2018-2032.
Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að vinna deiliskipulagsbreytingu fyrir svæðið, þ.e. VÞ7 á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Skipulagsbreytinguna skal vinna í samræmi við 2.mgr. 43 gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Sótt er um stækkun lóðar við Hópsveg 1. Fulltrúar 240 ehf. munu mæta til fundarins undir dagskrárliðnum til að kynna verkefnið.