Málsnúmer 2104015
Bæjarráð Grindavíkur - 1580. fundur - 5.4.2021 00:00:00
Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur PhD kom á fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams og fór hann yfir stöðu mála.
Lagt fram minnisblað unnið af Verkís, Eflu, HÍ og VÍ, dags. 12.04.2021, um prófanir á hraunrennslisvörnum.
Bókun
Fyrir liggja útfærslur á prófunum á mögulegum hraunrennslisvörnum í Meradölum út frá núverandi gosi í Geldingadölum. Tilgangur þessara prófana er að afla reynslu og þekkingar á uppbyggingu varnargarða sem gæti þurft að byggja síðar til að verja mikilvæga innviði eða íbúðabyggð á Reykjanesskaga. Bæjarráð Grindavíkur leggur mikla áherslu á að þær aðstæður sem nú eru til staðar í Meradölum verði tafarlaust nýttar til að framkvæma prófanir á hraunrennslisvörnum að veittum tilskyldum leyfum til framkvæmdanna.
Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur PhD tengist fundinum með fjarfundarbúnaði.