Málsnúmer 2103084
Bæjarstjórn Grindavíkur - 518. fundur - undefined
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Páll Valur og Guðmundur.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2020 er tekinn til síðari umræðu.
Vísað er til yfirferðar endurskoðenda við fyrri umræðu þann 27. apríl síðastliðinn. Engar breytingar hafa orðið á ársreikningnum frá fyrri umræðu. Endurskoðandi Grindavíkurbæjar mun árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ársreikninginn og staðfestir hann með undirritun sinni.
Síðari umræða um ársreikning 2020 Grindavíkurbæjar og stofnana og er hann lagður fram til samþykktar.