Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2102113

Bæjarráð Grindavíkur - 1586. fundur - undefined


Auglýsingartíma á tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð er lokið, auglýsingartími var frá 6. maí 2021 til og með 17. júní 2021. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og HS veitum. Ein athugasemd barst og var hún frá Öldungaráði Grindavíkurbæjar.

Þær viðbætur/breytingar sem voru gerðar við tillöguna eftir að auglýsingartíma lauk eru eftirfarandi:
- Tengibygging á milli Víðihlíðar og félagsheimilisins má vera 2 hæðir.
- Hámarkshæð félagsheimilis er breytt úr 7 m í 9 m frá botnplötu.
- Heimilt verður að byggja tæknirými m.a. fyrir loftræstisamstæðu ofan á eða undir félagsheimili.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð, með þeim breytingum sem hafa orðið á henni eftir auglýsingu, á fundi nefndarinnar þann 21. júní 2021. Tillögunni var vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Víðihlíð eins og hún er hér lögð fram, með áorðnum minniháttar breytingum. Er skipulagsfulltrúa falið að senda deiliskipulagið til staðfestingar Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá er skipulagsfulltrúa falið að senda þeim er gerðu umsagnir og athugasemd við deiliskipulagið umsögn Grindavíkurbæjar um þær. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá verður niðurstaða bæjarstjórnar auglýst.


Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð var auglýst í samræmi við skipulagslög á tímabilinu 6. maí til og með 17. júní 2021. Umsagnir lagðar fram til umfjöllunar í skipulagsnefnd þann 21. júní sl. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Minjastofnun Íslands og HS veitum. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að svara umsagnaraðilum.

Þær viðbætur/breytingar sem eru gerðar við greinagerð og deiliskipulagsuppdráttinn eftir að auglýsingartíma deiliskipulagstillögunnar lauk eru eftirfarandi:
- Tengibygging á milli Víðihlíðar og félagsheimilisins má vera 2 hæðir.
- Hámarkshæð félagsheimilis er breytt úr 7 m í 9 m frá botnplötu.
- Heimilt verður að byggja tæknirými m.a. fyrir loftræstisamstæðu ofan á eða undir félagsheimili.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Víðihlíð með þeim breytingum sem gerðar eru á henni eftir auglýsingu.

Tillögunni var vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar á fundi skipulagsnefndar þann 21. júní sl.