Málsnúmer 2101058
Frístunda- og menningarnefnd - 102. fundur - 3.3.2021 00:00:00
Drög að reglum um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta í Grindavík lögð fram.
Nefndin leggur til að heimilt verði að setja tímabundið upp auglýsingaskilti á einstökum viðburðum á vegum Grindavíkurbæjar, m.a. Sjóaranum síkáta og 17. júní án þess að óska þurfi eftir heimild byggingafulltrúa.
Nefndin leggur áherslu á að í reglunum verði gert ráð fyrir því að íþróttafélög með samstarfssamning við Grindavíkurbæ hafi áfram rúma heimild til þess að setja upp auglýsingaskilti í fjáröflunarskini við sína keppnisvelli í samráði við sviðsstjóra og forstöðumann íþróttamannvirkja.
Drög að reglum um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta lögð fram.