Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2101038

Skipulagsnefnd - 82. fundur - undefined


Bæjarstjóri Grindavíkur og fulltrúar HS orku sátu fundinn undir dagskrárliðnum.

Farið yfir lóðarmál í Svarstengi og rætt um samstarf Grindavíkurbæjar og HS orku um skipulagningu lóða í Svartsengi.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við HS orku.


HS orka hefur rætt það við sviðsstjóra og bæjarstjóra að skoða skipulag lóða í Svartsengi með það að markmiði að bæta við lóðum á iðnaðarsvæðinu. Verkefnið yrði samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar og HS orku þar sem aðilar eiga sitthvora landspilduna innan svæðisins sem um ræðir. 10 deiliskipulagsbreytingar hafa verið gerðar á svæðinu frá árinu 1997 og tímabært að endurskoða skipulagið. Fulltrúar HS orku munu koma á fundinn og sýna gögn sem unnin hafa verið vegna málsins. Engin fylgiskjöl fylgja erindinu.