Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2101034

Bæjarstjórn Grindavíkur - 516. fundur - undefined


Til máls tók: Sigurður Óli.

Grenndarkynningu á byggingarleyfi TGraf við Staðarsund 7 er lokið, ein athugasemd barst.

Skipulagsnefnd hefur tekið til skoðunar athugasemd sem barst eftir grenndarkynningu. Tekinn var til greina hluti athugasemdarinnar. Rýmisnúmer annarra eignarhluta en umsækjanda munu verða óbreytt. Eignarhaldstafla leiðréttist í samræmi við það. Eftir breytinguna verða eignarhlutar 6 talsins með sameign. Athugasemd varðandi stærð botnflatar byggist á misskilningi. Athugsemdaraðili fær nánari útskýringar.

Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísaði afgreiðslunni til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.


Grenndarkynningu á byggingarleyfi TGraf við Staðarsund 7 er lokið, ein athugasemd barst.

Skipulagsnefnd hefur tekið til skoðunar athugasemd sem barst eftir grenndarkynningu. Tekinn var til greina hluti athugasemdarinnar. Rýmisnúmer annarra eignarhluta en umsækjanda munu verða óbreytt. Eignarhaldstafla leiðréttist í samræmi við það. Eftir breytinguna verða eignarhlutar 6 talsins með sameign. Athugasemd varðandi stærð botnflatar byggist á misskilning. Athugsemdaraðili fær nánari útskýringar.

Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísaði afgreiðslunni til bæjarstjórnar.