Málsnúmer 2012008
Bæjarráð Grindavíkur - 1566. fundur - 12.8.2020 00:00:00
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð leggur til að viðbótar dagdvalarrými sem skv. fjármálaáætlun ríkisstjórnar verður úthlutað á næsta ári, verði sótt af fullri alvöru þar sem þörfin er orðin mjög brýn. Mikil fjölgun hefur orðið á öldruðum í dagdvöl í Víðihlíð en samþykkt rými eru einungis 5 og hafa verið það frá árinu 2004. Undanfarin 10 ár hefur Grindavíkurbær verið að þjónusta langt umfram þau rými. Nú er verið er að þjónusta 13 aðila, þar af eru nokkrir aðilar með miklar þjónustuþarfir.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að fylgja málinu eftir gagnvart ráðuneytinu.
Félagsmálanefnd leggur til að dagdvalarrými (45), sem skv. fjármálaáætlun ríkisstjórnar verður úthlutað á næsta ári, verði sótt af fullri hörku. Ef bæjarráð tekur undir þessi sjónarmið væri gott ef búið væri að draga upp vel orðaða bókun.