Málsnúmer 2011071
Bæjarráð Grindavíkur - 1567. fundur - undefined
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Samtökin 78 um fræðslu til starfsfólks og nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, félagsmiðstöðva og stjórnenda auk ráðgjafar. Lýðheilsuteymi Grindavíkurbæjar telur mikilvægt að efla fræðslu um hinsegin málefni meðal starfsfólks og nemenda og leggur til að samningurinn verði samþykktur. Frístunda- og menningarnefnd tók undir bókun lýðheilsuteymisins.
Bæjarráð samþykkir samninginn við Samtökin 78 með þeirri breytingu að í samninginn verði sett uppsagnarákvæði.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Samtökin 78 um fræðslu til starfsfólks og nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, félagsmiðstöðva og stjórnenda auk ráðgjafar. Lýðheilsuteymi Grindavíkurbæjar telur mikilvægt að efla fræðslu um hinsegin málefni meðal starfsfólks og nemenda og leggur til að samningurinn verði samþykktur. Frístunda- og menningarnefnd tók undir bókun lýðheilsuteymisins. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.