Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2011055

Skipulagsnefnd - 79. fundur - undefined


HS Orka óskar eftir heimild Grindavíkurbæjar með tilvísun í 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, til að vinna að því að uppfæra deiliskipulag iðnaðarsvæðisins á Reykjanesi á kostnað fyrirtækisins. Samhljóða beiðni verður send til Reykjanesbæjar. Í gildi er eitt sameiginlegt deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæðið, sem nær bæði til Reykjanesbæjar og Grindavíkur. HS Orka hefur í samtali við skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna farið yfir forsendur þess að uppfæra deiliskipulagið, sem hefur verið breytt 11 sinnum. Ein af forsendum deiliskipulagsbreytingarinnar er að deiliskipulagssvæðinu verði skipt í tvö svæði, annars vegar í Grindavík og hinsvegar í Reykjanesbæ.

Skipulagsnefnd samþykkir að heimila HS orku að fara í deiliskipulagsbreytingu á iðnaðarsvæðinu á Reykjanesi á kostnað fyrirtækisins.

Skipulagsnefnd vekur athygli umsækjanda á eftirfarandi:
HS orka ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.


HS Orka óskar eftir heimild Grindavíkurbæjar með tilvísun í 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, til að vinna að því að uppfæra deiliskipulag iðnaðarsvæðisins á Reykjanesi á kostnað fyrirtækisins. Samhljóða beiðni verður send til Reykjanesbæjar. Í gildi er eitt sameiginlegt deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæðið, sem nær bæði til Reykjanesbæjar og Grindavíkur. HS Orka hefur í samtali við skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna farið yfir forsendur þess að uppfæra deiliskipulagið, sem hefur verið breytt 11 sinnum.