Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2011036

Bæjarstjórn Grindavíkur - 512. fundur - undefined

Til máls tóku: Sigurður Óli og Guðmundur.

Sótt er um byggingarleyfi fyrir fiskeldishús við aðstöðu Matorku við Nesveg (Húsatóftir eldisstöð). Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.

Samkvæmt 1. mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 segir að þegar sótt er um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn eða sá aðili sem heimild hefur til fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. 6. gr., ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu.

Sú framkvæmd sem hér er óskað eftir byggingarleyfi fyrir er innan iðnaðarsvæðis I6 samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar og er skilgreint fyrir fiskeldi. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að fara með byggingaráformin i grenndarkynningu þar sem þau varða ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Er þetta i samræmi við 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða byggingaleyfið.

Sótt er um byggingarleyfi fyrir hús fyrir fiskeldi við aðstöðu Matorku við Nesveg (Húsatóftir eldisstöð). Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.