Málsnúmer 2010040
Skipulagsnefnd - 78. fundur - undefined
Anton Guðmundsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa máls.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Víkurbraut 27 vegna breytinga á innra skipulagi. Lýsing á byggingarleyfisumsókn er "Reyndarteikning og breyting á matshlutum.
Ekki er þörf á að grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Er þetta í samræmi við 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Víkurbraut 27 vegna breytinga á innra skipulagi. Lýsing á byggingarleyfisumsókn er "Reyndarteikning og breyting á matshlutum".