Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2010023

Bæjarstjórn Grindavíkur - 513. fundur - undefined


Til máls tók: Sigurður Óli.

Sótt er um byggingarleyfi fyrir því að byggja kalda geymslu (14,4 m2) við Sólbakka í Þórkötlustaðarhverfi. Geymslan verður bárujárnsklætt timburhús með sama útliti og sömu litum og íbúðarhúsið. Í samræmi við skilmála verndaráætlunar Þórkötlustaðarhverfis þá hafa byggingaráformin verið grenndarkynnt íbúum Þórkötlustaðahverfis ásamt því að leitað var álits Minjastofnunar. Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu ásamt því að umsögn Minjastofnunar liggur fyrir án athugasemda. Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin á 81.fundi sínum þann 15.desember sl.

Bæjarstjórn samþykkir byggingaráformin. með 6 atkvæðum, Hallfríður situr hjá. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.


Grenndarkynning vegna byggingaráforma, köld geymsla á lóð, við Sólbakka hefur farið fram án athugasemda, ásamt því að umsögn Minjastofnunar liggur fyrir án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.

Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.