Málsnúmer 2009018
Bæjarráð Grindavíkur - 1570. fundur - 2.2.2021 00:00:00
Við þá ákvörðun að gefa eftir 20 prósent af leigu vegna heimsfaraldurs Covid-19 var haft að leiðarljósi að leigutaki hafði boðið í rekstur tjaldsvæðisins miðað við uppgefinn gestafjölda 2019 og árin þar á undan. Fyrir liggur að árið 2020 hafði gestakomum á tjaldsvæðið fækkað verulega. Ekki er um styrk að ræða heldur einungis niðurfellingu á hluta af leigu, eða kr. 867.955. Tjaldsvæðið er eini ferðaþjónustureksturinn sem leigður er út af hálfu Grindavíkurbæjar og því þessi ákvörðun engan veginn fordæmisgefandi fyrir önnur ferðaþjónustufyrirtæki í Grindavík.
Fulltrúar D og B-lista.
Borist hefur erindi frá Grindavík Experience.