Málsnúmer 2009006
Bæjarráð Grindavíkur - 1556. fundur - 9.8.2020 00:00:00
Lagt fram erindi frá íbúa vegna lyktarmengunar af völdum fiskþurrkunar í Grindavík.
Erindið er lagt fyrir að beiðni Helgu Dísar Jakobsdóttur bæjarfulltrúa.
Samkvæmt upplýsingum frá HES var hreinsibúnaður í ólagi tímabundið en er kominn í lag núna. Bæjarráð bendir á að kvartanir um lyktarmengun skulu beinast til HES.
Borist hefur erindi frá íbúa um þessa mengun. Erindið er lagt fyrir að beiðni Helgu Dísar Jakobsdóttur bæjarfulltrúa.