Málsnúmer 2008091
Bæjarráð Grindavíkur - 1556. fundur - 9.8.2020 00:00:00
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur hf., Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um uppbyggingu hafnar- og upptökumannvirkja í Njarðvík. Verkefnið snýr að bættri aðstöðu í Njarðvíkurhöfn þannig að unnt sé að skapa tækifæri fyrirtækja til byggingar skipaþjónustuklasa.
Hafnarstjóri Reykjaneshafnar og ráðgjafi Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur mættu á fundinn til að kynntu nánar þessar fyrirætlanir.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir um skipaþjónustuklasa í Njarðvíkurhöfn og lýsir fullum stuðningi við verkefnið.
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um uppbyggingu hafnar- og upptökumannvirkja í Njarðvík. Verkefnið snýr að bættri aðstöðu í Njarðvíkurhöfn þannig að unnt sé að skapa tækifæri fyrirtækja til byggingar skipaþjónustuklasa. Hafnarstjóri Reykjaneshafnar og framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur mæta á fundinn til að kynna nánar þessar fyrirætlanir.