Málsnúmer 2008018
Bæjarráð Grindavíkur - 1554. fundur - 8.11.2020 00:00:00
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hjólreiðadeild UMFG, Víkings og hjólreiðafélagið Bjartur óska eftir afnotaleyfi á götum innan Grindavíkur laugardaginn 5. september fyrir Samskipamótið í hjólreiðum.
Bæjarráð gerir athugasemd við að Vegagerðin loki Krýsuvíkurvegi við suðurenda Kleifarvatns, frá kl. 11:00 til 12:30 og einnig Suðurstrandarvegi til austurs við Grindavík frá kl. 9:00 - 13:00, laugardaginn 5. september 2020. Ótækt sé að vegum út frá Grindavík verði lokað af þessu tilefni. Að öðru leyti gerir bæjarráð ekki athugasemd við að keppnin verði haldin.
Hjólreiðadeild UMFG, Víkings og hjólreiðafélagið Bjartur óska eftir afnotaleyfi á götum innan Grindavíkur laugardaginn 5. september fyrir Samskipamótið í hjólreiðum.