Málsnúmer 2007003
Bæjarstjórn Grindavíkur - 513. fundur - undefined
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, Hallfríður, Guðmundur, Helga Dís, Hjálmar og Birgitta.
Rekstrarniðurstaða A-hluta árið 2021, fyrir fjármagnsliði og afskriftir, er áætluð 275,0 milljónir króna og er það 8,1% af heildartekjum. Í A- og B-hluta er rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir áætluð 471,0 milljónir króna og er það 12,4% af heildartekjum.
Áætluð rekstrarniðurstaða áranna 2021-2024 er þessi í milljónum króna:
2021 2022 2023 2024 Samtals
A-hluti 59 204 289 344 896
A- og B-hluti 110 235 311 364 1.020
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta eru áætlaðar í árslok 2021, 10.812 milljónir króna. Þar af er áætlað að handbært fé verði um 527 milljónir króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 1.770 milljónir króna. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 646 milljónir króna.
Langtímaskuldir eru áætlaðar um 775 milljónir króna í árslok 2021. Þar af eru langtímaskuldir við lánastofnanir 186 milljónir króna.
Skuldahlutfall Grindavíkurbæjar og stofnana sem hlutfall af heildartekjum er 49,8%.
Veltufé frá rekstri áranna 2021-2024 er eftirfarandi í milljónum króna:
2021 2022 2023 2024 Samtals
A-hluti 351 534 657 743 2.285
A- og B-hluti 514 678 790 879 2.861
Afborganir langtímalána eru að jafnaði um 10,1 milljón króna á árunum 2021-2024 sem gerir alls um 40,4 milljónir króna á þessu fjögurra ára tímabili.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum áranna 2021-2024 er þessi milljónum króna:
2021 2022 2023 2024 Samtals
A-hluti 1.022 635 832 574 3.063
A- og B-hluti 1.328 708 950 737 3.723
Fjármögnun framkvæmda og afborgana af langtímalánum, á þessu 4 ára tímabili, mun að mestu verða með veltufé þessara ára. Auk þess er gert ráð fyrir að handbært lækki um 1.109 milljónir kr. og verði 361 milljónir króna í árslok 2024.
Bókun frá bæjarfulltrúa S-lista
Það er skoðun fulltrúa S-lista að öll vinnubrögð við þessa fjárhagsáætlun hafa verið með miklum ágætum þar sem átt hefur sér stað samtal og samráð við sem flesta sem málin varðar. Það er ljóst að á tímum sem þessum eru allar hagræðingarákvarðanir erfiðar en það er hlutverk kjörinna fulltrúa að standa vörð um bæjarsjóð, en um leið að horfa til forgangsröðunar hvað varðar framkvæmdir og standa vörð um grunnþjónustu með hag bæjarbúa að leiðarljósi til lengri framtíðar. Staða bæjarsjóðs og rekstur Grindavíkurbæjar hefur staðið traustum fótum á undanförnum árum sem hefur gert störf bæjarfulltrúa auðveldari við gerð fjárhagsáætlunar.
Staðan er því miður önnur núna þar sem bæjarsjóður hefur orðið fyrir tekjuskerðingu og því hefur reynt á stjórnvöld bæjarins að takast á við og mæta þeim erfiðleikum sem við hafa blasað. Að mati fulltrúa S-lista sem ætíð hefur lagt áherslu á víðtækt samráð þvert á flokka í störfum sínum sem bæjarfulltrúi hefur bæjarstjórn Grindarvíkur tekist að gera það með því að leggja höfuðáherslu á að verja velferðarkerfi sín og grunnþjónustu. Þrátt fyrir að ýmsar framkvæmdir sem áætlaðar voru á næstu misserum þurfi að bíða enn um sinn sem eru að sjálfsögðu vonbrigði mun Grindavíkurbær lítið slá af í framkvæmdum eins og fjárfestingaráætlunin ber glöggt merki. Það mun þó þýða vegna aðstæðna að það markmið bæjarstjórnar um að handbært fé verði ekki lægra en 1 milljarður króna mun ekki halda þar sem að þessar fjárfestingar eru verulegar og veltufé frá rekstri næstu ára stendur ekki undir þeim.
Fulltrúi S-lista vill nota tækifærið og senda öllu starfsfólki Grindavíkurbæjar sem og öðrum bæjarbúum hugheilar jólakveðjur með þá einlægu von í brjósti að árið 2021 verði okkur öllum farsælt og hamingjuríkt og þakkar fyrir einstaka fórnfýsi, þolinmæði og auðmýkt á þeim erfiðu tímum sem við öll höfum upplifað á þessu ári 2020. Það er ljóst að í okkar góða bæjarfélagi býr mikill mannauður sem sýnt hefur af sér einstakt umburðarlyndi og æðruleysi sem ekki er sjálfgefið í aðstæðum sem þessum.
Páll Valur Björnsson, bæjarfulltrúi S-lista.
Bókun frá bæjarfulltrúa M-lista
Bæjarfulltrúi Miðflokksins sér sig knúinn til þess að kjósa á móti fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2021 vegna ákvörðunar meirihlutans um að leggja aukið fé til Keilis Miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs sem staðsett er að Ásbrú í Reykjanesbæ. Á fundi bæjarráðs þann 15.12.2020 komu fulltrúar B-listans og D-listans með bókun þar sem þeir lýstu yfir stuðningi við skólann og samþykktu að leggja honum til tæpar 23 m.kr. strax á nýju ári.
Þau gögn sem lögð hafa verið fram máli þessu til stuðnings gefa ekki tilefni til að ætla að rekstur skólans geti orðið sjálfbær og af þeim sökum kaus ég gegn bókuninni á bæjarráðsfundinum umrædda. Þar sem ekki er kosið í beinni kosningu um þessa fjárfestingu með öðrum hætti en að samþykkja eða synja fjárhagsáætlun sé ég mig knúna til að hafna fjárhagsáætlun. Vil árétta það sem fram hefur komið í máli mínu að öll vinna við fjárhagsáætlunina hafi verið ítarleg og virkilega góð vinnubrögð og því er þetta eina atriði sem atkvæði mitt fellur á.
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins
Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2021-2024 með 6 atkvæðum, Hallfríður greiðir atkvæði á móti.
Fjárhagsáætlun 2021-2024 er lögð fram til síðari umræðu.