Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1912059

Bæjarráð Grindavíkur - 1567. fundur - undefined


Bókun
Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa ávallt studd dyggilega við rekstur og uppbyggingu á sviði menntamála á Suðurnesjum. Fjölbreytt námsframboð og gott aðgengi að námsleiðum og námskeiðum fyrir alla aldurshópa stuðlar að hærra menntunarstigi og eflingu atvinnulífs í landshlutanum. Því er mikilvægt að ríki og sveitarfélög styrki til framtíðar allar þær menntastofnanir sem halda úti framhaldsfræðslu og símenntun á Suðurnesjum.
Stjórnendur Keilis hafa leitað til ríkisins og sveitarfélaganna á Suðurnesjum um stuðning við að leysa þann gríðarlega fjárhagsvanda sem skólinn býr við. Áformað er að færa núverandi hlutafé í félaginu niður í 500 þús.kr. og að hlutafé verði síðan aukið um 370 m.kr. Hlutur ríkissjóðs verði 190 m.kr. og sveitarfélaganna á Suðurnesjum 180 m.kr. Þar af er gert ráð fyrir að hlutur Grindavíkurbæjar verði 22.806 þús.kr. eða 6,155% af heildarhlutafé.
Verði ekkert aðhafst varðandi fjárhagslega endurskipulagningu Keilis er allt útlit fyrir að rekstrargrundvöllur skólans sé brostinn. Við þessar aðstæður samþykkir bæjarráð að Grindavíkurbær kaupi hlut í Keili að fjárhæð 22.806 þús.kr. og styðja þannig við órofið skólahald sem að öðrum kosti hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir nemendur og starfsfólk Keilis. Þessi samþykkt er gerð í trausti þess að mennta- og menningarmálaráðuneytið og sveitarfélögin á Suðurnesjum sameinist einnig um að tryggja starfsaðstöðu og langtímasamning um rekstur Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Skólinn gegnir lykilhlutverki á sviði framhaldsskóla og símenntunar í einni af stærstu atvinnugreinum svæðisins og landsins alls og hefur lengi þurft að búa við skammtímaúrræði og óvissu um framtíð þessarar mikilvægu menntastofnunar.
Fulltrúar B- og D-lista.

Bókun
Miðflokkurinn í Grindavík hafnar því að leggja til aukið fé í hlutafjáraukningu til handa Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Greinargerð
Tæpar 23 milljónir eru veruleg fjárhæð af sameiginlegum sjóði bæjarbúa og slíkar fjárhæðir á ekki að reiða fram nema að vel ígrunduðu máli. Ábyrgð okkar bæjarfulltrúa er töluverð þegar kemur að þessum sameiginlega sjóði og á þeim forsendum byggjum við ákvörðun okkar. Þau gögn sem lögð hafa verið fram máli þessu til stuðnings gefa ekki tilefni til að ætla að rekstur skólans geti orðið sjálfbær og af þeim sökum getur fulltrúi M-lista ekki stutt þetta.
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir
Bæjarfulltrúi Miðflokksins

Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra fjárhagsáætlun 2021 um 22,806 milljónir áður en hún kemur til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjóra er falið að mæta fyrir hönd Grindavíkurbæjar á hluthafafund Keilis sem haldinn er miðvikudaginn 16. desember.


Fyrir liggur erindi um fjárhagslega aðkomu Grindavíkurbæjar að rekstri Keilis.