Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1910045

Bæjarstjórn Grindavíkur - 506. fundur - undefined


Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Hallfríður.

Lögð fram beiðni um viðauka á fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 3.200.000 kr. á lykilinn 06813-9612.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.


Óskað var eftir verðum frá fjórum verktökum í vinnu við gönguræsi undir Nesveg við golfvöll. Þrír af verktökunum skiluðu inn verðum. Jón og Margeir ehf. voru lægstir með verð upp á 6.336.000 kr. eða 93% af kostnaðaráætlun.

Óskað er heimildar til að semja við lægstbjóðanda um verkið. Bæjarráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda. Jafnframt er óskað eftir viðauka á fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 3.200.000 kr. á lykilinn 06813-9612.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.