Málsnúmer 1910026
Bæjarstjórn Grindavíkur - 501. fundur - undefined
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Hallfríður.
Lögð er fram beiðni um viðauka á rekstur Saltfisksetur árið 2019 að fjárhæð 4.790.202 kr. til að jafna út eigið fé og er vegna skuldar Saltfiskseturs við Grindavíkurbæ. Fjármögnun viðaukans verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Auk þess liggur fyrir tillaga um að samþykkja endanlega afskrift á stofnframlagi bæjarins í Saltfisksetrinu að fjárhæð 1.410.000 kr.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs og samþykkir jafnframt samhljóða afskrift á eignarhlut bæjarins í Saltfisksetrinu.
Lögð er fram beiðni um viðauka á rekstur Saltfisksetur að fjárhæð 4.790.202 kr. til að jafna út eigið fé og er vegna skuldar við Grindavíkurbæ. Fjármögnun viðaukans verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Auk þess þarf að samþykkja endanlega afskrift á stofnframlagi bæjarins í Saltfisksetrinu að fjárhæð 1.410.000 kr.