Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1909036

Bæjarstjórn Grindavíkur - 501. fundur - undefined


Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur og Sævar.

Lögð fram samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Grindavíkurbæ.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða samþykkt með 6 atkvæðum gegn atkvæði Hallfríðar.

Bókun
Miðflokkurinn hafnar með öllu þeim hækkunum sem meirihlutinn hefur lagt hér til. Og bendir enn og aftur á að laun bæjarfulltrúa hækka samkvæmt launavísitölu sem vænta má að sé um eða yfir 2% hækkun. Eins hafa ekki verið dregin til baka hækkun nefndarlauna en þau standa óbreytt frá fyrri samþykktum.

Greinargerð
Meirihlutinn ásamt fulltrúa Samfylkingarinnar dró til baka þær miklu hækkanir nefndarlauna sem samþykktar voru á síðasta bæjarstjórnarfundi með yfirlýsingu sem birtist á vef vf.is. Við teljum að hér sé ekki verið að draga til baka hækkanir nema að litlu leyti þar sem breyta á kjörum bæjarfulltrúa. Meirihlutinn hefur lagt til að greitt verði fyrir fundi sem bæjarfulltrúar sitja svo sem fundi á vegum SSS og SÍS. Nú þegar fá bæjarfulltrúar greidd mánaðarlaun og ættu að duga vel fyrir þessum fundum þó ekki sé greitt aukalega fyrir þá. Að auki á að hækka nefndarlaun svo um munar eða á bilinu 33% - 51% og hefur sú hækkun því ekki verið dregin að neinu leyti til baka.
Bæjarfulltrúi Miðflokksins

Fundarhlé tekið kl. 17:30 - 17:55

Bókun
Við teljum að nýjar tillögur um hækkun uppá 2.5% rúmist vel innan marka lífskjarasamninganna.
Nefndarlaunin í Grindavík hafa verið mjög lág og með nýrri samþykkt er verið að lagfæra kjör þeirra íbúa sem sitja í föstum nefndum bæjarins.
Við viljum jafnframt benda á að ekki er skylda að greiða laun fyrir áherynarfulltrúa í nefndum. Á aukafundi bæjarstjórnar þann 1 ágúst 2018, var samþykkt eftir ósk fulltrúa Miðflokksins að greiða laun fyrir áheyrnarfulltrúa í bæjarráði. Sömu laun og þeim sem þar sitja með atkvæðarétt og ábyrgð. En sú samþykkt hækkaði mánaðarlaun þeirra áheyrnarfulltrúa um allt að 65%.
Fulltrúar B- og D-lista

Fundarhlé tekið kl. 18:00 - 18:15

Bókun
Hér er talað um að í ágúst 2018 hafi verið tekinn upp sú venja að greiða áheyrnarfulltrúa fundarlaun sem sæti á í bæjarráði að beiðni fulltrúa Miðflokksins. Fyrir það fyrsta vil ég benda meirihlutanum á það að sá gjörningur var alls ekki gerður að beiðni fulltrúa Miðflokksins og í öðru lagi benda mönnum á að fletta upp fundargerð frá bæjarstjórnarfundi 2010 nr 397 þar er hægt að sjá að þetta er ekki í fyrsta sinn sem áheyrnarfulltrúi fær greitt fyrir setu í bæjarráði. Hér er sex flokka stjórn og lýðræðislegt að fulltrúi frá hverjum flokki hafi sæti í bæjarráði hvort það sé greitt fyrir það var ekki að minni beiðni.
Bæjarfulltrúi Miðflokksins

Bókun
Á bæjarráðsfundum fyrir bæjarstjórnarfund 1 ágúst 2018, var tekist á um samþykkt þessa er lúta að kjörum bæjarfulltrúa.
Fulltrúi Miðflokksins tók að fullan þátt í þeim fundum og fékk því framgengt ásamt minnilutanum að áheyrnarfultrúar fengu fulla þóknun fyrir setu á bæjarráðsfund.
Fulltrúi B lista
Sigurður Óli Þórleifsson


Lögð fram samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Grindavíkurbæ.