Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1909020

Bæjarstjórn Grindavíkur - 508. fundur - undefined


Til máls tóku: Sigurður Óli og Hjálmar.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi aðilar verði skipaðir í starfshóp um byggingu félagsheimilis fyrir aldraða: Stefanía S Jónsdóttir og Hjálmar Hallgrímsson. Frá öldungaráði er tilnefnd Ágústa Gísladóttir.

Bæjarstjórn samþykkir tilnefninguna.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 600.000 kr. vegna nefndarlauna starfshópsins og að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.


Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi aðilar verði skipaðir í starfshóp um byggingu félagsheimilis fyrir aldraða: Stefanía S Jónsdóttir og Hjálmar Hallgrímsson. Öldungaráð skipi þriðja fulltrúann.
Í fundargerð nr. 7 hjá öldungaráði er Ágústa Gísladóttir tilnefnd í starfshópinn, sbr. 12. mál á dagskrá.

Bæjarráð leggur til að greitt verði fyrir setu í starfshópnum.
Ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun og því þarf að samþykkja viðauka fyrir árið 2020.
Áætlun er um að hver fundur hópsins muni verða um 150.000 kr. með launatengdum gjöldum. 4 fundir munu því kosta um 600.000.