Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1904068

Bæjarráð Grindavíkur - 1531. fundur - 11.12.2019 00:00:00


Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að farið verði í viðræður við HSS um að grunnskólanemendur í Grindavík njóti heilsuverndar í grunnskólanum í samræmi við viðmið landlæknis.

Bæjarráð tekur undir bókun fræðslunefndar og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.


Fræðslunefnd hefur unnið í málinu undanfarið ár og telur fullreynt að ná árangri nema með því að vísa málinu áfram á næsta yfirvald þ.e. bæjarráð. Von er til að með samtali eða tilmælum æðstu embættismanna Grindavíkurbæjar verði gerð bragarbót fyrir nemendur hér.