Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1904025

Bæjarráð Grindavíkur - 1512. fundur - 4.9.2019 00:00:00


Lögð fram tillaga frá Vegagerðinni að tilfærslu á hámarkshraða á Suðurstrandarvegi austan Þórkötlustaðavegar. Í dag er þetta þannig að frá þéttbýlismörkum er 70 km/klst hámarkshraði ca. 40m austur fyrir Þórkötlustaðarveg. Tillagan er að með tilliti til veglínu og vegna nálægðar vegamóta við Þórkötlustaðarveg sé rétt að færa þessi mörk austar og að þeim stað sem framkvæmdir við nýjan Suðurstrandarveg hófust árið 2005 um 1500 m austan við Þórkötlustaðarveg.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna.


Vegagerðin leggur til lækkun á hámarkshraða á Suðurstrandarvegi við Þórkötlustaðaveg. Tillagan er að ósk íbúa á svæðinu.