Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1902079

Bæjarráð Grindavíkur - 1510. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann vinnu vegna staðarvalsgreiningar á Eldvarpavirkjun.


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs upplýsir og kynnir vinnu vegna staðarvalsgreiningar á Eldvarpavirkjun.

HS Orka hefur á undanförnum árum unnið að undirbúningi virkjunar jarðvarma í Eldvörpum. Í ár er fyrirhugað að bora þar djúpa rannsóknarholu en áður, árið 1983, var boruð þar grunn rannsóknarhola.

Til að undirbúa sem best virkjun jarðvarmans stendur til að skoða nokkra valkosti fyrir staðsetningu orkumannvirkja. Er ætlunin að setja saman vinnuhóp til að koma að úrvinnslu og gefa valkostum einkunn sem síðar verður nýtt í mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og gerð aðalskipulags fyrir uppbygginguna þar sem henni verður valinn staður.

Þátttakendur í vinnuhópi verða fulltrúar frá eftirtöldum aðilum:
? HS Orka
? Grindavíkurbær
? Bláa Lónið
? VSÓ ráðgjöf, sem ráðgjafi verkkaupa