Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1902004

Bæjarstjórn Grindavíkur - 511. fundur - undefined


Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Helga Dís, Páll Valur og Hjálmar.

Tillaga
Lagt er til að leigufjárhæðir séu miðaðar útfrá fermetrafjölda íbúða með geymslu, eins og stærðir birtast í skráningartöflu hússins og verði eftirfarandi:
Eldri íbúðir
Minni íbúðir 2.200 kr. á fermetra.
Stærri íbúðir 2.050 kr. á fermetra.

Nýrri íbúðir
Minni íbúðir 2.300 kr. á fermetra.
Stærri íbúðir 2.150 kr. á fermetra.

Leigufjárhæðir verði bundnar vísitölu neysluverðs með upphafsvísitölu í október 2020.

Jafnframt er lagt til að íbúðaréttur verði endurgreiddur. Í þeim tilvikum sem íbúðaréttur er endurgreiddur fari leiga eftir þessum nýju reglum.

Þær íbúðir sem úthlutað verði það sem eftir er árs 2020 verði leigðar út samkvæmt þessum reglum. Að öðru leyti er lagt til að gildistími verði frá og með janúar 2021.

Samþykkt samhljóða.


Vinnuhópur um leigu í Víðihlíð leggur til að miða leiguverð við fermetra á leigðu rými í stað þess að miða við stofnverð. Jafnframt leggur vinnuhópurinn til að endurgreiða íbúðaréttinn.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögurnar.

Bóka þarf um gildistíma á þessu:
Í ljósi þess að nú eru 4 íbúðir lausar (1 fer reyndar í þjónustu dagdvalar) er lagt til að íbúðir sem úthlutað verður til áramóta fari inn í þetta nýja fyrirkomulag en að öðru leiti taki fyrirkomulagið gildi 1.1.2021.
Frá 1.1.2021 geti allir fengið íbúðaréttinn greiddan gegn því að leiga verði skv. nýja fyrirkomulaginu. Sem þýðir þá að þeir sem nú eru að greiða lægri leigu fá ekki endurgreiðslu nema gangast undir samning með hærri leigu.