Málsnúmer 1812053
Bæjarstjórn Grindavíkur - 496. fundur - undefined
Til máls tóku: Sigurður Óli og Hjálmar.
Lögð fram beiðni frá Margréti Harðardóttur, arkitekt um staðfestingu bæjarstjórnar á drögum að samkomulagi á milli Grindavíkurbæjar annars vegar og verkefnisstjórnar nýbyggingar Alþingis hins vegar um skipti á grágrýti í eigu Grindavíkurbæjar fyrir Reykjavíkurgrágrýti úr grunni meðferðarkjarna NLSH við Hringbraut í Reykjavík. Fyrirhugað er að nýta Grindavíkurgrágrýtið sem hráefni til vinnslu steinklæðningar fyrir nýbyggingu Alþingis, en verkið er nú í undirbúningi. Vinnsluhæfir steinar hafa þegar verið valdir á staðnum og merktir fyrir flutning.
Um er að ræða að Grindavíkurbær fái afhent 120m2 eða um 360 tonn af sérvöldu grágrýti til notkunar í brimvarnargarða, gegn 75m2 eða um 220 tonnum af grágrýti því sem nú er í eigu bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir beiðnina samhljóða.
Á fundi með Sigurði Ólafssyni, 26. apríl s.l. voru gerð drög að samkomulagi á milli Grindavíkurbæjar annars vegar og verkefnisstjórnar nýbyggingar Alþingis hins vegar um skipti á grágrýti í eigu Grindavíkurbæjar fyrir Reykjavíkurgrágrýti úr grunni meðferðarkjarna NLSH
við Hringbraut í Reykjavík. Fyrirhugað er að nýta Grindavíkurgrágrýtið sem hráefni til vinnslu steinklæðningar fyrir nýbyggingu Alþingis, en verkið er nú í undirbúningi. Vinnsluhæfir steinar hafa þegar verið
valdir á staðnum og merktir fyrir flutning.
Hér með er leitað eftir formlegri staðfestingu bæjarstjórnar Grindavíkur á samkomulaginu, sem
felur í sér að Grindavíkurbær fái afhent 120m3 eða um 360 tonn af sérvöldu grágrýti til notkunar
í brimvarnargarða, gegn 75m3 eða um 220 tonnum af grágrýti því sem nú er í eigu bæjarins.