Málsnúmer 1810057
Bæjarstjórn Grindavíkur - 494. fundur - undefined
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Hjálmar, Helga Dís og Páll Valur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa málinu í stefnumótunarvinnu Kvikunnar.
Fyrstu tillögur að hönnun útsýnispalls og sviðs fyrir neðan Kvikuna liggja fyrir.
Bókun skipulagsnefndar á fundi 53:
Skipulagsnefnd telur að miðað við kostnaðaráætlun og mögulega nýtingu á mannvirkinu sé óæskilegt að ráðast í þessa framkvæmd.
Tillögurnar hafa verið kynntar í Hafnarstjórn, Frístunda- og menningarnefnd og Umhverfis- og ferðamálanefnd ásamt Sviðsstjórateymi.
Bókun Hafnarstjórnar, fundur 464:
Hafnarstjórn telur að langt sé farið frá þeim hugmyndum sem farið var með af stað í upphafi. Hafnarstjórn hafnar því alfarið að hafnarsjóður fjármagni útsýnispall þar sem hann er ekki á hafnarsvæðinu.
Bókun frístunda- og menningarnefndar, fundur 79:
Fyrstu tillögur að hönnun útsýnispalls og sviðs fyrir neðan Kvikuna lagðar fram. Nefndinni líst vel á hugmyndina og leggur til að þær verði þróaðar áfram. Varanlegt svið og skjólsælt torg á þessum stað munu koma að góðum notum í tengslum við hina ýmsu viðburði í sveitarfélaginu og efla bæjarbraginn.
Bókun Umhverfis- og ferðamálanefndar, fundur 33:
Nefndin fór yfir fyrstu hugmyndir að útsýnispalli og varanlegu sviði við Kvikuna. Nefndinni list vel á frumdrögin en íhugar þann möguleika að færa útsýnispallinn yfir á þak sviðsins og hann yrði á afmörkuðu svæði þar. Gott væri að taka saman hvað er til í eigu bæjarins til að nýta þegar sviðið er í notkun, s.s. ljósabúnað og hljóðkerfi.