Málsnúmer 1809069
Bæjarráð Grindavíkur - 1493. fundur - undefined
Lagðar fram myndir af gangbrautarmerkingum á götum í Grindavík. Þar má sjá að það eru nánast allar yfirborðsmerkingar farnar af götunum.
Starf grunnskóla er komið í fullan gang og þarf að bregðast við til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda. Einnig hægja gangbrautir á umferð.
Einnig er vakin athygli á því að það er ekki byrjað á framkvæmdum við hjólahliðið við Kúadal.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja því eftir að gangbrautir á Víkurbraut, ásamt bílastæðum verði málaðar strax.
Bæjarráð óskað eftir því að skipulagsnefnd komi með tillögur til að draga úr umferðarhraða við Víkurbraut, á þeim kafla sem að Grindavíkurbær ber ábyrgð á.
Forseti bæjarstjórnar leggur málið fyrir bæjarráð.