Málsnúmer 1808181
Bæjarráð Grindavíkur - 1492. fundur - 9.11.2018 00:00:00
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Yfirlit yfir fjölda barna í vistun milli 16:00-17:00 árin 2013-2018 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að hætta að bjóða upp á vistun til 17:00 á leikskólanum Laut og það taki gildi frá og með 1. nóvember 2018.
Bæjarráð vekur athygli á því að áfram verða í boði viðbótar 15 mínútur þannig að vistun getur þá orðið til 16:15.
Taka afstöðu til viðmiðs um fjölda barna. Umbeðin gögn frá síðasta bæjarráðsfundi liggja frammi.