Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1808155

Bæjarstjórn Grindavíkur - 487. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Sigurður Óli.

Trésmiðja Heimis ehf leggur fram fyrirspurn þess efnis hvort að heimilt sé að minnka lóðir við Víkurhóp 33 og 35 úr 10m breidd í 7,4m þannig að hægt verði að byggja samskonar hús á lóðinni og byggð hafa verið við Norðurhóp 1-5. Lóðir við Víkurhóp 31 og 37 myndu þá stækka sem minnkun miðju lóða nemur.

Lóðarstærðir fyrir og eftir breytingu:

Nr. Fyrir breytingu Eftir breytingu
31 420m2 493,8m2
33 280m2 207,2m2
35 280m2 207,2m2
37 420m2 493,8m2

Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. Lóðarhafi ber að greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.


Fyrirspurn um breytingu á stærðum lóða við Víkurhóp 31-33-35-37.

Víkurhóp 31-33-35-37
Trésmiðja Heimis ehf leggur fram fyrirspurn þess efnis hvort að heimilt sé að minnka lóðir við Víkurhóp 33 og 35 úr 10m breidd í 7,4m þannig að hægt verði að byggja samskonar hús á lóðinni og byggð hafa verið við Norðurhóð 1-5. Lóðir við Víkurhóp 33 og 35 myndu þá stækka sem minnkun miðju lóða nemur.

Lóðarstærðir fyrir og eftir breytingu:

Nr. Fyrir breytingu Eftir breytingu
45 420m2 493,8m2
47 280m2 207,2m2
49 280m2 207,2m2
51 420m2 493,8m2

Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. Lóðarhafi ber að greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.