Málsnúmer 1806009
Frístunda- og menningarnefnd - 75. fundur - 9.5.2018 00:00:00
Aðsókn að leikjanámskeiðinu var dræm í lokin og ástæða til þess að athuga með að bjóða þeim nemendum sem eru að ljúka skólavist í leikskóla og hefja skólavist í Grunnskóla að hausti, þátttöku á leikjanámskeiðinu. Aðgangur að skráningu á námskeiðin þarf að vera opnaður strax í upphafi árs og nefndin leggur til að hærra gjald sé á skráningar sem gerðar eru nálægt upphafi leikjanámskeiðs. Nefndin leggur ennfremur áherslu á að Leikjanámskeið fái aðstöðu í Hópsskóla fyrir starfsemi sína.
Farið yfir leikjanámskeið sumarsins