Málsnúmer 1804077
Bæjarráð Grindavíkur - 1478. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá skipulagsstofnun dags. 17. apríl 2018 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni í skýrslunni "Efnistaka í Rauðamel á Reykjanesi - Tillaga að matsáætlun" dagsett 6.4.2018.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umhverfisþætti matsins, valkosti þess, gagnaöflun sem fyrirhuguð er né hvernig til standi að vinna úr gögnum til að meta umhverfisáhrif og hvernig fyrirhugað er að setja þau fram í frummatsskýrslu.
Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ.
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um meðfylgjandi tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar. Sjá meðfylgjandi gögn frá skipulagsstofnun.