Málsnúmer 1804025
Bæjarstjórn Grindavíkur - 483. fundur - undefined
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn eftirfarandi breytingar á reglum um félagslega heimaþjónustu. Inn kemur nýr þjónustuþáttur, þ.e. heimsending matar. Einnig þarf að koma inn nýr liður í gjaldskrá, þ.e. gjald vegna heimsendingar matar að fjárhæð 200 kr. ofan á matargjaldið þannig að heimsendur matur kosti 1.200 kr. skammturinn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
Breyting á reglum um félagslega heimaþjónustu. Inn kemur nýr þjónustuþáttur, þ.e. heimsending matar. Einnig þarf að koma inn nýr liður í gjaldskrá, þ.e. gjald vegna heimsendingar matar að fjárhæð 1.200.