Málsnúmer 1803022
Bæjarstjórn Grindavíkur - 484. fundur - undefined
Fundarhlé tekið kl. 18:40 - 18:55
Til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2017 er tekinn til síðari umræðu. Vísað er til yfirferðar endurskoðenda og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs við fyrri umræðu þann 24. apríl síðastliðinn. Engar breytingar hafa orðið á ársreikningnum frá fyrri umræðu.
Endurskoðendur Grindavíkurbæjar hafa áritað ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.
Bæjarstjórn staðfestir ársreikninginn samhljóða með undirritun sinni og felur sviðsstjóra að senda til innanríkisráðuneytisins.
Síðari umræða um ársreikning Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2017.