Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1803016

Bæjarstjórn Grindavíkur - 482. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.

Til máls tók: Hjálmar.

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi, dagsett í mars 2018. Breytingartillaga gerir ráð fyrir að deiliskipulagsmörkum svæðisins verði breytt í nágrenni við Gunnuhver. Breytingin er til þess fallin að samræma deiliskipulagsmörk iðnaðar- og orkuvinnslusvæði og skipulagsmörk nýs deiliskipulags, sem lagt er fram samhliða breytingartillögu þessari. Tillagan hefur verið grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki að auglýsa tillöguna og feli skipulagsfulltrúa að senda tillögu til Skipulagsstofnunar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.


Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæði á Reykjanesi, dagsett í mars 2018. Breytingatillaga gerir ráð fyrir að deiliskipulagsmörkum svæðisins verði breytt í nágrenni við Gunnuhver. Breytingin er til þess fallin að samræma deiliskipulagsmörk iðnaðar- og orkuvinnslusvæði og skipulagsmörk nýs deiliskipulags, sem lagt er fram samhliða breytingartillögu þessari. Tillagan hefur verið grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.$line$Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki að auglýsa tillöguna og feli skipulagsfulltrúa að senda tillögu til Skipulagsstofnunar.