Málsnúmer 1712086
Bæjarráð Grindavíkur - 1471. fundur - undefined
Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að skilyrða fjárveitingar til íþróttafélaga og annarra félaga sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga, því að félögin setji sér siðareglur, viðbragðsáætlanir og fræði sitt fólk um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi.
Bæjarráð tekur undir bókun frístunda- og menningarnefndar en hún er svohljóðandi:
Í þeirri vinnu sem framundan er við endurnýjun samnings Grindavíkurbæjar og UMFG og önnur íþróttafélög verður ákvæði um einelti og ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni sett í samningana.
Stjórnin hvetur sveitarfélög til að skilyrða fjárveitingar til íþróttafélaga og annarra félaga sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga, því að félögin setji sér siðareglur, viðbragðsáætlanir og fræði sitt fólk um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi.